Code of Conduct - Íslenska

 

Download a printable version

 

Fyrirmynd ECIA að siðareglum og faglegu siðferði fyrir innanhússarkítekta

 

Þessi fyrirmynd að siðareglum og faglegu siðferði er gefin út af Evrópuráði innanhússarkítekta (European Council of Interior Architects (ECIA)) og var tekin upp af aðildarsamtökunum á allsherjarþingi 1. október 2005.
Að því er varðar þessar siðareglur, er innanhússarkítekt manneskja sem er aðili að faglegum samtökum tengdum ECIA, og/eða fyrirtæki hans eða hennar, samstarfsmenn eða starfsmenn, eða aðili sem er starfsmaður eða samstarfsmaður samtaka sem eru faglega í tengslum við innanhússarkítektúr eða menntun, rannsóknir, þjálfun eða iðkun hans.
Sakir læsileika er kvenkyni sleppt í eftirfarandi greinum.

 

1 Almenn ábyrgð

1.1 Fylgni við almennar siðareglur

Innanhússarkítekt skal aðhafast á þann hátt sem stuðlar að heiðri og sæmd starfsgreinarinnar. Hann skal fara að reglum um siði og framferði og gildandi lögum í þeim löndum og lögsögum þar sem hann veitir faglega þjónustu.

1.2 Hæfni

Innanhússarkítekt skal stöðugt leitast við að auka faglega þekkingu sína og kunnáttu. Hann skal aðeins taka að sér verkefni sem eru innan frammistöðugetu hans.

1.3 Að forðast hagsmunaárekstra

Innanhússarkítekt skal aðeins taka að sér eða þiggja stöðu þar sem persónulegir hagsmunir hans rekast ekki á við faglega skyldu.

2 Ábyrgð gagnvart samfélaginu

Innanhússarkítekt gengst undir faglega skuldbindingu til að efla félagslega, menningarlega og umhverfislega mælikvarða samfélagsins. Hann tekur með í reikninginn mikilvægi faglegra athafna sinna gagnvart heilbrigði, öryggi og velferð allra þeirra sem vænta má að noti eða njóti afurðar vinnu hans.

3 Ábyrgð gagnvart umbjóðandanum

3.1 Skuldbinding og hollusta

Innanhússarkítekt skal vinna að hagsmunum umbjóðanda síns innan marka faglegrar skyldu.

3.2 Verksvið, samkomulag og samningur

Innanhússarkítekt skal aðeins taka að sér faglegt verk ef verksvið, skilyrði, ábyrgð, skaðabótaskylda og takmarkanir þar á, umbun (þóknun) eða reikniaðferðir þar á og gildistími samningsins eru klárlega umsamin skriflega.

3.3 Umbun

Innanhússarkítekt skal, þegar hann tekur að sér verkefni, sjá að laun fyrir vinnuna eigi við svið og mikilvægi unnins verks, og þiggja einungis fjárhagslegan ágóða eða annan ágóða frá þriðja aðila ef samið er um það fyrirfram við umbjóðandann.

3.4 Gegnsæi

Innanhússarkítekt skal viðhalda viðeigandi og árangursríku innra verklagi og framkvæmd til að auðvelda honum að starfa á skilvirkan hátt, og hann skal upplýsa umbjóðandann um framvindu verks sem hann tekur að sér fyrir hönd umbjóðandans og um öll mál sem geta haft áhrif á gæði þess eða kostnað. Framkvæmd, hvað varðar verkefnið, verður tiltæk umbjóðandanum til eftirlits eftir óskum.

3.5 Trúnaður

Innanhússarkítekt skal alltaf virða trúnað við þá sem hann vinnur fyrir og ljóstra ekki upp um trúnaðarmál án undanfarandi samþykkis.

4 Ábyrgð gagnvart starfsgreininni

4.1 Félagsskapur

Innanhússarkítektinn skal stuðla að opinni og faglegri umræðu um allar hliðar starfsgreinarinnar, og ekki gagnrýna starfsfélaga óheiðarlega eða reyna að ófrægja hann eða verk hans opinberlega.

4.2 Hollusta og samkeppni

Innanhússarkítekt skal ekki vitandi vits bola öðrum hönnuði burt frá verkefni. Innanhússarkítekt, sem er ráðinn til að breyta núverandi byggingu eða innréttingu, skyldi leita bróðurlegra ráðlegginga hjá upprunalega hönnuðinum áður en hann hefur verkið. Upprunalegi hönnuðurinn er kannski ekki andvígur ráðningunni sem slíkri.

4.3 Samvinna og röð

Innanhússarkítekt skal veita samstarfsmönnum og starfsmönnum viðeigandi vinnuumhverfi, umbuna þeim á sanngjarnan hátt, og greiða fyrir faglegum þroska þeirra, og tryggja að þeir viðhaldi þessum siðareglum.

4.4 Frumleiki

Innanhússarkítekt viðurkennir þann þátt sem starfsfélagar eða starfsmenn kunna að hafa átt í hönnuninni. Hann skal ekki samþykkja fyrirmæli frá umbjóðanda sínum sem vitandi vits fela í sér stuld, né skal hann vísvitandi aðhafast á nokkurn þann hátt sem felur í sér stuld.

5 Kynning

5.1 Réttsýni

Innanhússarkítektinn skal miðla eða auglýsa vinnu sína og sérfræðiþekkingu og reynslu með frómum staðhæfingum. Kynning skal vera sanngjörn gagnvart umbjóðendum og öðrum hönnuðum og í samræmi við sæmd starfsgreinarinnar.

5.2 Frumleiki

Innanhússarkítektinn skal aðeins auglýsa faglega vinnu eða athafnir sem hann og/eða starfsfélagar hans hafa hannað. Hann skal ekki láta viðgangast að nafn hans sé tengt við framkvæmd hönnunar sem hefur verið breytt á þann hátt að hún sé ekki lengur í meginatriðum upprunalegt verk innanhússarkítektsins.

5.3 Keppni

Félagi getur tekið þátt í keppnum, eða verið í dómnefnd keppna, þegar þær eru haldnar í fylgni við þjóðlegar- og alþjóðlegar reglur, sem samþykktar eru af faglegum samtökum okkar.

6 Fylgni og viðurlög

Öll mál viðkomandi brotum á þessum siðareglum og faglegu siðferði skulu skoðuð af landssamtökunum, stjórn og/eða siðanefnd, sem getur gefið út viðvörun eða agaábendingu, eða getur vísað lögbrjótnum úr samtökunum. Starfsfélagi, umbjóðandi stefnda, eða einhver sem hefur önnur fagleg tengsl við stefnda getur borið fram kvörtun gegn innanhússarkítekt.


Tekið upp af allsherjarþingi, Malmö, 1. október 2005.

Download a printable version